top of page
Gísli B. Björnsson
Listamaður
Líf mitt hefur tengst myndlist og sköpun, frá æsku til þessa dags.
Ég hef alla tíð verið innan um myndlistarmenn, Baldvin Björnsson gullsmiður og listmálari var afi minn, Björn Th. Björnsson listfræðingur, föðurbróðir minn og Ásgerður Ester veflistamaður kona hans.
Í vinagarði okkar er fjöldi listamanna. Sem barn sótti ég námskeið í Handíðaskólanum og þótti „ágætur” í teikningu í skóla. Átján ára gamall (1956) hóf ég listnám í dagdeild Myndlista- og handíðaskóla Íslands.
Nám mitt þar var það sama og annarra nemenda skólans, listamanna okkar samtíðar. Árið 1959 fór ég til náms í Listaakademíunni í Stuttgart, Þýskalandi í myndlist og hönnun og lauk þar námi haustið 1961.
.
bottom of page